mánudagur, janúar 29, 2007

Heilbrigð skynsemi

Með reglulegu millibili fæ ég algjört antipat á tölvunni. Þá get ég ekki með nokkru móti sest við hana, hvað þá unnið á hana eitthvað af viti. Nú er ég ný staðin upp úr slíku antipati tilbúin að blogga hartnæt daglega. Gott, gott, lofa nú dálítið upp í ermarnar. Ég bloggaði annars þennan fína langhund eftir jólin sem blogger át án þess að hiksta. Nú er ég búin að skipta yfir í new-blogger í von um betri árangur.

Annars er ég tilbúin að planta mér kyrfilega fyrir framan tölvuna daglega á meðan litla ljósið sefur til að vinna í spennandi verkefnum. Enginn ástæða til að vera líflaus, heilalaus eða vitlaus þó maður sé í fæðingarorlofi.

4 Comments:

At 29 janúar, 2007 16:02, Anonymous Nafnlaus said...

Batnandi mönnum er best...., ......með hækkandi sól og svo mætti lengi telja. Það er a.m.k. gott að þú er mætt aftur (einu sinni enn!).
mamma

 
At 30 janúar, 2007 13:27, Anonymous Nafnlaus said...

Ég bíð spennt.....

 
At 31 janúar, 2007 13:29, Anonymous Nafnlaus said...

Nú líst mér á þig ;)

 
At 19 ágúst, 2011 19:42, Anonymous Nafnlaus said...

[url=http://www.playatonlinecasinos.com/]casino bonus[/url] [url=http://www.casinovisa.com/blackjack/]internet casino[/url] , [url=http://www.concordiaresearch.com/games/video-poker/index.html]roulette[/url] , [url=http://www.realcazinoz.com/casino_bonus]paypal casino[/url] , [url=http://www.avi.vg/category.php?a=sex4sexx&cid=151]adult toys[/url]

 

Skrifa ummæli

<< Home