fimmtudagur, júlí 28, 2005

Iss piss og pela mál.....

Eitt af því sem fylgdi þessu skemmtilega bloggi sem tölvan át var bráðskemmtileg saga af einu af afkvæmunum á heimilinu. Það skal tekið fram að öll hafa greyin fengið bráðabirgða nöfn sem hæfa útliti þeirra. Nöfnin eru einungis til aðhægt sé að þekkja þau í sundur þegar talað er um þau, ein heitir Branda, ein heitir Skjalda, ein heitir Symetría og strákurinn eini heitir Pjakkur.

Sagan er af Symetríu, sem fékk þetta skemmtilega nafn af því að hún er symetrísk, og því þegar hún sagði bleikum sandala dóttur minnar stríð á hendur. Sandalinn lá í sakleysi sínu á svefnherbergisgólfinu þar sem gálaus eigandinn hafði skilið hann eftir í stað þess að fara úr honum í forstofunni eins og lög gera ráð fyrir. Symetríu leist ekkert á þetta bleika skrímsl og sagði því óðara stríð á hendur. Í fyrstu virtist bardaginn nokkuð jafn en svo sagði reynsluleysið og aldurinn til sín og sandalinn náði yfirhöndinni. Vesalings Symetría sem hélt að hún væri allra kisa hugrökkust varð að játa sig sigraða þar sem hún sat í sandalanum alveg pikk föst og horfði mjög aumkunarverð á mig. Hún átti þó síðasta leikinn því áður en ég bjargaði henni úr klóm sandalans gerði hún sér auðvitað lítið fyrir og pissaði í hann, eigandanum sem var á leiðinni á skátamót í sandalanum, til óblandinar ánægju.

Svo heppilega vildi til að ég náði myndum af öllu saman og læt ég þær fylgja með að ganni, ásamt myndum af gullfallegum systkinum Symetríu.

Púðursykur og króna þegar mér er mikið mál þá pissa ég bara í skóna.

3 Comments:

At 28 júlí, 2005 21:16, Anonymous Nafnlaus said...

Þetta minnir óneitanlega á "Kisubörnin kátu" sem við lásum, þú og ég, þegar við vorum smáar. Mikið verður gaman hjá ykkur um jólin ef þið verðið enn með þessa frábæru fjölskyldu hjá ykkur.
Mér persónulega finnst nú Branda fallegust, en hvað með það.
Kær kveðja
Amma Blíðu

 
At 29 júlí, 2005 12:05, Blogger Rannveig said...

á þessu heimli ganga afkvæmin að sjálfsögðu undir nafninu kisubörnin kátu, í það minnsta hjá mér.
branda er sennilega fremst (eða fallegust) á meðal jafningja en pjakkurinn er æðislegur og tvíburarnir algjörir hnullungar.

 
At 05 ágúst, 2005 20:35, Blogger frizbee said...

Ég banna ykkur hér með að láta kisubörnin af hendi... eða að láta þau vaxa úr grasi! Too cute

 

Skrifa ummæli

<< Home